.................Ég er lítil afmælisskvísa:) .......... :D
Ég kom í heiminn þann 3 apríl 2006 klukkan 08:44 var 15 merkur og 52 cm ég var með mikið dökkt hár og nánast svört augu.
Mamma mín heitir Hafdís Hödd og pabbi minn heitir Magnús Torfi. En ég og mamma búum í Hafnarfirði
En pabbi minn býr í Hveragerði

(Við ákváðum að læsa albúminu en lykilorðið er árið sem mamma mín fæddist) :) Ef þið vitið það ekki þá endilega ekki vera feimin og sendið mömmu póst!! ;)






Rambó leikfélaganna er mættur á svæðið. Með barn í hrútsmerkinu mega foreldrar búast við miklu fjöri á heimilinu því það ríkir engin lognmolla í kringum hrútinn. Ekki ætlast til þess að barnið sitji kyrrt með hringlu. Þetta er barnið sem veifar þér ofan af hæsta tré, alls óhrætt við að taka áhættu. Hrútsbarnið er allt annað en hljóðlátt og lætur oft vel í sér heyra. Sem eldsmerki er hrúturinn orkumikill og hefur ávallt eitthvað fyrir stafni. Verður erfitt að ráða við litla hrúta? Það er líklegra en ekki. Foreldrar ættu eins fljótt og hægt er að kenna þessu barni að vinna með öðrum börnum. Að deila einhverju með öðrum er eitthvað sem kemur ekki af sjálfu sér – það þarf að kenna litlum hrútum. Þeir eru einnig ákaflega tapsárir. Þeir þrá athygli og eiga mjög auðvelt með að verða sér úti um hana með ýmsum aðferðum. Hrútar eru fæddir leiðtogar og ef þú ætlar að hafa eitthvað að segja er betra að láta þá vita með afgerandi hætti hver er við stjórnvölinn því annars er eins líklegt að stjórnin verði tekin úr þínum höndum. Lítill hrútur er oft eins og ótemja, lítið gefinn fyrir að hlýða reglum og vera þægur nema þegar honum hentar. Vegna þess hve hann er orkumikill er nauðsynlegt að hann fái mikla hreyfingu. Hann verður að fá að hlaupa um og róta til heima hjá sér. Ef hann fær ekki útrás fyrir orkuna verður hann pirraður og ergilegur. Honum líður best í lifandi og fjörugu umhverfi. Þar sem fljótfærni og óþolinmæði eru meðal veikleika hans þarf að kenna honum að hægja á sér og telja upp að tíu áður en hann rýkur af stað. Einnig þarf að venja hann á að ljúka því sem hann byrjar á.




21 minnisatriði frá mér til mömmu og pabba!!

Ekki spilla mér. Ég veit vel að ég á ekki að fá allt sem ég bið um, ég er bara að prófa þig.

Ekki hika við að vera ákveðin við mig, ég kýs það frekar, það veitir mér öryggi.

Ekki leyfa mér að temja mér slæma ávana, ég verð að treysta á þig, að þú uppgvötir þá strax í byrjun.

Ekki láta mér finnast ég smærri en ég er, þá hegða ég mér kjánalega til að sýna hvað ég er stór.

Ekki leiðrétta mig í áheyrn annarra, ég hlýði miklu frekar ef þú talar við mig í einrúmi.

Ekki láta mig líta á glappaskot mín sem þau væru glæpur, það mundi rugla mig í verðmætamati mínu.

Ekki hlífa mér við afleiðingunum. Stundum þarf ég líka að læra af reynslunni, þó það sé ekki alltaf sársaukalaust.

Ekki æsa þig þótt ég segist "hata þig", það ert ekki þú sem ég "hata" heldur það vald sem þú hefur til að hindra mig.

Ekki gera of mikið úr óþekktinni í mér, ég nota hana stundum til að ná athygli þinni.

Ekki þrasa, þá læt ég bara eins og ég heyri ekkert.

Ekki gleyma því að ég get ekki tjáð mig eins og ég vildi, þess vegna er ég ekki alltaf sjálfum mér samkvæmur.

Ekki gefa mér loforð sem þú getur ekki haldið, ég yrði fyrir svo miklum vonbrigðum.

Ekki treysta um of á heiðarleika minn. Það er auðvelt að hræða mig svo ég segi ósatt.

Ekki vera sjálfri þér ósamkvæm, það ruglar mig og ég þori ekki að treysta þér.

Ekki gera lítið úr ótta mínum, hann er oft svo raunverulegur, en þú getur hjálpað mér að yfirvinna hann ef þú reynir að skilja mig.

Ekki daufheyrast þegar ég spyr spurninga, þá hætti ég að spyrja þig og leita til annarra eftir svörum.

Ekki gefa í skyn að þú sért fullkomin og gallalaus. Það verður svo mikið áfall fyrir mig þegar ég kemst að því að þú ert hvorugt.

Ekki líta á það sem niðurlægingu að biðja mig afsökunar. Mér hitnar um hjartað ef þú biðst fyrirgefningar í einlægni og mér þykir enn vænna um þig en áður.

Ekki gleyma hversu hratt ég vex og þroskast. Það hlýtur að vera erfitt að fylgja mér eftir, en reyndu samt.

Ekki gleyma hversu gaman mér þykir að finna upp á einhverju nýju og prófa mig áfram. Ég mundi ekkert þroskast, ef ég fengi það ekki, svo reyndu að umbera mig.

Ekki gleyma að án mikillar ástar og skilnings þrífst ég ekki, en það veistu nú þegar, er það ekki?










Dóttir mín
Elsku yndislega dóttir mín.
Ég veit að ég á ekki alltaf auðvelt með að tjá tilfinningar mínar.
En nú langar mig til að segja þér hvað ég elska þig mikið.
Mig langar til að segja þér hug minn.
Ég veit ekki hvar ég væri ef ég hefði ekki fengið þig inn í líf mitt.
Þú ert mér allt.
Þú ert súrefnið mitt, andardrátturinn minn og löngun mín til að lifa.
Hamingjan mín hófst með komu þinni í þennan heim.
Í dag horfi ég á þig og er hissa á því hvað þú ert raunveruleg.
Ég er svo ótrúlega heppin að hafa fengið þig inn í líf mitt, og að fá að hafa þig mér við hlið í gegnum lífið.
Þú ert gullið mitt, fjársjóðurinn minn.
Ég hef reynt að læra sem mest af þér í gegnum tíðina.
Ég reyni að meta þig að verðleikum.
Þú hefur kennt mér svo margt um lífið, sem ég annars hefði farið á mis við.
Hvar væri ég án þín?
Ég elska þig elsku dóttir mín, nú og að eilífu.




ÁÐUR EN ÉG VARÐ MAMMA
Áður en ég varð mamma borðaði ég matinn á meðan hann var heitur,
gekk í hreinum fötum og gat spjallað í rólegheitunum í símann.

Áður en ég varð mamma gat ég farið seint í háttinn,
sofið út um helgar,
greitt mér daglega og gengið um íbúðina án þess að stíga á leikföng.

Áður en ég varð mamma velti ég því aldrei fyrir mér hvort pottaplönturnar á heimilinu væru eitraðar.
Áður en ég varð mamma hafði enginn kúkað, pissað eða ælt á mig.

Áður en ég varð mamma hugsaði ég skýrt,
hafði fullkomið vald yfir líkama mínum og tilfinningum og svaf alla nóttina.

Áður en ég varð mamma hafði ég aldrei haldið grátandi barni föstu til þess að læknir gæti sprautað það eða tekið úr því blóðprufu.

Áður en ég varð mamma hafði ég aldrei brostið í grát við að horfa í tárvot augu og þekkti ekki þá hamingjuflóðbylgju sem getur sprottið af einu litlu brosi.

Áður en ég varð mamma sat ég aldrei langt fram á nótt og horfði á barn sofa eða hélt á sofandi barni vegna þess að ég tímdi ekki að leggja það frá mér.

Áður en ég varð mamma vissi ég ekki hvað ein lítil vera getur haft mikil áhrif á líf manns og hversu óendanlega sárt það er að geta ekki kippt öllum vandamálum í lag.

Áður en ég varð mamma vissi ég ekki að ég gæti elskað svona heitt og hversu dásamlegt móðurhlutverkið væri.

Áður en ég varð mamma þekkti ég ekki þetta einstaka samband móður við barn sitt og gleðina sem fylgir því að gefa svöngu barni brjóst.

Áður en ég varð mamma vaknaði ég ekki tíu sinnum á nóttu til þess að aðgæta hvort allt væri ekki örugglega í lagi.

Áður en ég varð mamma hafði ég ekki kynnst hlýjunni, kærleikanum, sársaukanum og ævintýrinu sem fylgir því að eiga barn.




Thelma Björk

Thelma:Nafnið er fengið af gríska orðinu "thelema" sem merkir ósk.
Björk:Nafn þetta er leitt af trjáheitinu björk



Ingi Rafn og Óskar Erik

Bumbuskvísa Unnar og Sigga

Ragnar Natan

Guðrún Elín og Óliver Myrkvi

Emilía Björg

Bjarni Þór & Guðni Rafn